Lagt til að göngugatan á Akureyri verði lokuð fyrir umferð frá byrjun maí til loka september

Skipulagsráð tekur jákvætt í að göngugötunni á Akureyri verði lokað frá 1. maí til 30. september veg…
Skipulagsráð tekur jákvætt í að göngugötunni á Akureyri verði lokað frá 1. maí til 30. september vegna slæms ástands yfirborðs götunnar og komu skemmtiferðaskipa á þessu tímabili. Mynd Vbl.

Skipulagsráð tekur jákvætt í að göngugötunni á Akureyri verði lokað frá 1. maí til 30. september vegna slæms ástands yfirborðs götunnar og komu skemmtiferðaskipa á þessu tímabili.

Á fundi skipulagsráðs í gær var langt fram minnisblað þar sem settir eru fram nokkrir möguleikar á lokun gatna í miðbænum sumarið 2025, byggt á reynslu síðasta sumars og fyrirliggjandi óskum um stækkun lokunarsvæðis.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á verklagsreglum fyrir tímabundnar lokanir gatna sem felur í sér lengingu á tímabili lokunar til samræmis við það.

Leggja til þungatakmarkanir

Ráðið leggur jafnframt til að settar verði þungatakmarkanir á götuna og að notkun nagladekkja verði bönnuð. Meirihluti skipulagsráðs felur skipulagsfulltrúa í samstarfi við umhverfis- og mannvirkjasvið að vinna að útfærslu þessa. Varðandi hugmyndir um lokanir á hluta Skipagötu þá felur ráðið skipulagsfulltrúa að senda fyrirliggjandi tillögur til hagsmunaaðila við götuna og óska eftir áliti þeirra.

Helgi Sveinbjörn Jóhannsson M-lista samþykkir bókunina nema bann við notkun nagladekkja.

Eigum að styðja við frumkvæði fyrirtækja til að gera bæinn skemmtilegri

Sindri S. Kristjánsson S-lista óskar bókað: Fulltrúi Samfylkingarinnar styður heilshugar áform meirihluta skipulagsráðs um að halda áfram á þeirri gæfubraut sem mörkuð var síðasta sumar með lokun göngugötunnar og nú með lengingu tímabilsins. Á sama tíma eru það vonbrigði að meirihlutinn sjái sér ekki á þessum tímapunkti fært að koma til móts við hugmyndir og óskir rekstraraðila að loka litlum hluta Skipagötu á sama tímabili.

Sami rekstraraðili hefur ítrekað sýnt vilja sinn í verki til að glæða miðbæinn okkar lífi yfir sumarmánuðina með frumlegu viðburðahaldi utandyra þar sem komið er til móts við alla aldurshópa og fjölbreytta flóru ferðamanna. Á meðal bæði bæjarbúa og þeirra sem okkur heimsækja heyrist stundum að ekki sé úr mikilli afþreyingu eða fjölbreyttri menningu í bænum að moða. Bæjaryfirvöld eiga að styðja við frumkvæði lítilla fyrirtækja í bænum sem reyna hvað sem þau geta til að gera bæinn okkar skemmtilegri. Það má hafa gaman.

 

Nýjast