Nespresso opnaði formlega á Glerártorgi í dag
Nespresso hefur opnað verslun á Glerártorgi Akureyri. Hún bætist þá við verslanir sem fyrir eru í Kringlunni, Smáralind og á netinu. Verslunin er staðsett á ganginum við aðalinngang verslunarmiðstöðvarinnar.
„Það er von okkar að með því að opna verslun á Akureyri náum við betur að þjónusta íbúa á norðurlandi. Verslunin hefur verið opin í nokkra daga til að þjálfa starfsfólk, svo kölluð “soft-opening” og hafa viðtökurnar verið mjög góðar nú þegar. Í dag opnar hún svo formlega og munum við að sjálfsögðu vera með opnunartilboð á Glerártorgi þar sem allar kaffivélar og mjólkurflóara verða á 20% afslætti,“ segir Ívar Sigurjónsson framkvæmdastjóri Nespresso á Íslandi.