Nemendum unglingastigs Glerárskóla verður kennt í Rósenborg

Kennarar á unglingastigi Glerárskóla hafa staðið í flutningum undanfarna daga.
Kennarar á unglingastigi Glerárskóla hafa staðið í flutningum undanfarna daga.

Nemendum á unglingastigi, 8. til 10. bekk í Glerárskóla verður kennt í Rósenborg, húsakynni Barnaskóla Akureyrar í eina tíð,  næstu tvo vetur. Framkvæmdir eru framundan við A-álmu skólans og verður hún endurbyggð á næstu tveimur árum. „Allt skipulag er að komast í rétt horf og reynum við að hnýta flesta lausa enda á komandi dögum,“ segir á vefsíðu Glerárskóla.

„Þar sem tíminn er knappur náum við ekki að hefja skóla hjá nemendum í 8. -10. bekk fyrr en miðvikudaginn 24. ágúst,“ segir ennfremur en að skólasetning hjá nemendum 2. – 10. bekkjar mánudaginn 22. ágúst

„Eins og gefur að skilja eigum við að sjálfsögðu eftir að reka okkur á eitthvað smálegt sem betur má fara þegar við höldum af stað inn í skólaárið, en þá leysum við það í sameiningu eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir framkvæmdir og flutninga látum við faglega þáttinn í skólastarfinu ekki frá okkur. Kennarar vinna áfram að því að efla læsi og gera námsmat virkara, taka lykilhæfni inn í nám og mat á því, auk þess sem við vinnum að því að efla þátttöku nemenda í meðvitund á eigin námi. Við reynum okkar besta við að kenna nemendum Glerárskóla að taka ábyrgð á eigin lífi og gjörðum, leita lausna á verkefnum sem upp koma í lífi þeirra og sýna umhyggju og kærleika gagnvart hverjum öðrum. Til þess nýtum við jákvæðan aga sem reynst hefur okkur vel síðastliðin 14 ár,“ segir á vefsíðu Glerárskóla.

Nýjast