27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Mömmur gefa afrakstur möffinssölu
Frá afhendingu peningagjafarinnar, Erna Sigrún Hallgrímsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Inda yfirljósmóðir og Anna Sóley Cabrera. Mynd á faceboosíðu Mömmur og möffins
Tvær af þeim mömmum sem stóðu fyrir viðburðinum Mömmur og möffins í Lystigarðinum á Akureyri um verslunarmannahelgi afhentu Ingibjörgu Jónsdóttur yfirljósmóður peningagjöf, 884 þúsund krónur sem söfnuðust með sölu á möffinskökum. Upphæðin verður notuð til að kaupa þráðlausan hjartsláttarmónítor fyrir fæðandi konur.
„Viđ erum stađráđnar í því ađ halda áfram ađ safna fyrir fæđingardeildina okkar góđu og erum nú þegar byrjađar ađ undirbúa næstu kökusölu,“segir á facebook síðu viðburðarins Mömmur og möffins.