Mistök í reikningagerð

Höfuðstöðvar Norðurorku
Höfuðstöðvar Norðurorku

Rúmlega 700 viðskiptavinir Norðurorku hf. hafa fengið senda ranga reikninga til sín síðastliðna daga.  Ljóst er að sérkennileg og enn óútskýrð mistök hafa verið gerð.

Norðurorka hf. er með þjónustusamning við hugbúnaðarfyrirtæki og við prentsmiðju sem felur í sér að fyrir hver mánaðarmót er send skrá yfir þá reikninga sem á að prenta og senda út það skiptið.  Þegar viðskiptavinir Norðurorku fóru skoða reikningana sem bárust í þessari viku kom í ljós að um er að ræða reikninga fyrir febrúar með gjalddaga í mars 2013, segir í tilkynningu frá Norðurorku

Nýjast