Meirihluti bæjarráðs Akureyrar hefur samþykkt samning um uppbyggingu á félagssvæði KA

KA svæðið.
KA svæðið.

Meirihluti bæjarráðs  Akureyrar hefur samþykkt samning um uppbyggingu á félagssvæði KA. Fræðslu- og lýðheilsuráð hafði áður samþykkt samninginn fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísað honum til bæjarráðs

,,Ánægjulegt er að nú liggi fyrir samningur um uppbyggingu á KA svæðinu. Við teljum ekkert í samningnum koma í veg fyrir uppbyggingu á Akureyrarvelli og hann því í samræmi við nýsamþykkta húsnæðisáætlun.“ segir í bókun sem  Halla Björk Reynisdóttir L-lista, Hlynur  Jóhannsson M-lista og Lára Halla Eiríksdóttir D-lista  lögðu fram við umræður um málið i bæjarráði i morgun. 

Hilda Jana Gísladóttir S-lista lét bóka: ,,Mikilvægt er að tryggja að úthlutun lóða á Akureyrarvelli geti átt sér stað í samræmi við húsnæðisáætlun árið 2026, til að tryggja sveitarfélaginu tekjur til að standa straum af hluta þess kostnaðar sem um ræðir. Þá er mikilvægt að vinna að nýrri áætlun um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja, enda ljóst að einnig er þörf á uppbyggingu mannvirkja annarra íþróttafélaga sveitarfélagsins. Þá er mikilvægt að horfa til heildarsamhengis í framkvæmdaáætlun næstu ára, enda töluverð þörf á uppbyggingu mannvirkja tengt öðrum málaflokkum, ekki síst á velferðar- og fræðslusviði.“

 

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista óskaði einnig eftir að fá bókað:
,,Mér finnst skorta framtíðarsýn varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum og að horft sé til þess að við erum 20.000 manna sveitarfélag í því samhengi. Eins þarf að meta hvaða áhrif þessi samningur hefur á aðrar áætlaðar fjárfestingar sveitarfélagsins og fjárfestingar til framtíðar sem og að rekstrarkostnaður sé ljós.“

 Eins gerði Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista  ,,Sit hjá vegna ófullnægjandi gagna. Ég er ekki á móti þessari viðbót við fyrrum uppbyggingarsamning, það eru ákveðin rök fyrir því að klára félagsaðstöðuna samhliða en ákvörðun um það verður að vera byggð á faglegri vinnu. Enn er mörgum spurning ósvarað. Það er óábyrg fjármálastjórnun að ekki liggi til grundvallar minnisblað um rekstrarkostnað og hvaða áhrif þessi fjárfesting hefur á aðrar áætlaðar fjárfestingar og getu til fjárfestinga á næstu árum. Eins sýnir það skort á faglegum vinnubrögðum að hvorki fylgi gögnunum þarfagreining né heildar framtíðarsýn á uppbyggingu íþróttamannvirkja. Fulltrúar B-lista hafa talað fyrir því fyrir síðustu kosningar að dusta rykið af umræðu um þriggja kjarna starfsemi og skipuleggja uppbyggingu á KA og Þórssvæðinu samhliða því, það á enn við. Það er óásættanlegt að ekki sé tímasett í samningnum hvenær viðunandi frágangi eigi að ljúka né kostnaðargreining á því. 7. gr. um bindingu Akureyrarvallar samræmist ekki nýsamþykktri húsnæðisáætlun.“

 Meirihluti bæjarráðs samþykkti  samningin um uppbyggingu á félagssvæði KA og vísaði honum til umræðu í bæjarstjórn, Sunna Hlín sat hjá

Nýjast