Margrét Eir leikur Mama Morton
Leik- og söngkonan Margrét Eir hefur bæst í hóp þeirra sem taka þátt í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Chicago en Margrét Eir mun leika fangavörðinn Mama Morton.
„Þetta er hlutverk sem ég hef beðið eftir að takast á við lengi. Ég hef séð Chicago mjög oft og þessi kona er algjör díva, fangelsið er hennar og hún getur verið bæði fyndin og hættuleg. Það eru margar frábærar leik- og söngkonur sem hafa tekist á við þetta hlutverk og ég ætla mér að fara með þetta upp á næsta stig,“ segir Margrét Eir.
Margrét Eir hefur starfað með helstu tónlistarmönnum landsins og tekið þátt í uppfærslum hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar, til að mynda í söngleiknum Óliver. „Það er alltaf frábært að leika á Akureyri. Samkomuhúsið er svo magnað og skapar strax magnaða stemningu.“
Söngleikurinn Chicago verður frumsýndur í janúar 2023. Þegar er komið í ljós að Jóhanna Guðrún mun leika Velmu og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Roxý.
Miðasala er í fullum gangi á www.mak.is en forsölutilboð er enn í gildi.