27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Makrílvertíð hafin á Þórshöfn
Mikið líf er nú í uppsjávarvinnslu Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn og margir sem komið hafa til vinnu síðustu daga. Greint er frá þessu á heimasíðu Langanesbyggðar.
Þar segir að vinnsla úr fyrsta makrílfarmi sumarsins úr Sigurði VE hafi hafist í gærmorgun og von sé á Heimaey VE á morgun. Unnið sé á vöktum allan sólarhringinn og vonast er til að vaktavinna verði út októbermánuð þar sem makríll og síld verða unnin.
Makríllinn veiðist nú í síldarsmugunni norðan við sjötugustu breiddargráðu og því liggur Þórshöfn vel við landfræðilega miðað við marga aðra staði.