Maður sem heitir Ove til Akureyrar
Menningarfélag Akureyrar (Mak) og Þjóðleikhúsið taka höndum saman og færa einleikinn Maður sem heitir Ove á svið Samkomuhússins á Akureyri í janúar.
Í sýningunni, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda, fer Sigurður Sigurjónsson með hlutverk hins geðstirða Ove. Hér er á ferðinni bráðfyndið leikverk um sorg og gleði, einangrun og nánd, byggt á samnefndri metsölubók en leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson.
„Maður sem heitir Ove hefur slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu og uppselt hefur verið á allar sýningar frá frumsýningu. Sýningin er gestasýning Leikfélags Akureyrar og fagnar Menningarfélag Akureyrar samstarfinu við Þjóðleikhúsið sem gerir áhorfendum kleift að njóta þessara frábæru sýninga á fjölum Samkomuhússins snemma á næsta ári dagana 13. og 14. Janúar,“ segir á vef MAk.