20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Lokanir gatna á Akureyrarvöku 2023
Eins og kunnugt er fer Akureyrarvaka fram um helgina, frá föstudegi til sunnudags. Búist er við miklu fjölmenni í miðbænum sem leiðir óhjákvæmilega til þess að loka þarf nokkrum götum tímabundið.
Listagilið og göngugatan verða lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 11 föstudaginn 25. ágúst til hádegis sunnudaginn 27. ágúst. Það á einnig við um göturnar næst Ráðhústorgi, hluta Skipagötu, Strandgötu og Túngötu (rautt á meðfylgjandi korti).
Vegna Draugaslóðar á Hamarkotstúni verða hlutar Þórunnarstrætis, Hamarstígs og Byggðavegar lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 22.00-23.45 föstudagskvöldið 25. ágúst en þó geta íbúar og neyðaraðilar ekið um Þórunnarstræti og hluta Hamarstígs (fjólublátt á meðfylgjandi korti).
Gestir Draugaslóðar geta nýtt sérstök bílastæði sem verða á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti frá kl. 21.30-23.45. Umferðastýring inn á svæðið verður í höndum Björgunarsveitarinnar Súlna. Gestir eru eindregið hvattir til að nýta aðra samgöngumáta að svæðinu, munum að fátt er hollara en góð gönguferð um bæinn fagra. Sérstakt kort af bílastæði má finna HÉR
Vegna vígslu á sögustaurum verður hluti Aðalstrætis og Hafnarstrætis sunnan gatnamóta við Aðalstræti, lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 9.30-10.15 laugardaginn 26. ágúst. Gestir víslunnar halda síðan áfram í Sögugöngu og verða gatnamót Aðalstrætis og Hafnarstrætis í suðri lokuð fyrir umferð frá kl. 9.30-11.00 (blátt á meðfylgjandi korti).
Frá þessi segir á www.akureyri.is