20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Leiðsögn um Griðarstaði og 360 daga
Fimmtudaginn 9. mars kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, um sýningar Einars Fals Ingólfssonar, Griðastaðir, og Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, 360 dagar og málverk, sem báðar voru opnaðar síðastliðinn laugardag. Hlynur Hallsson safnstjóri tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.
Sýningin Griðastaðir er úrval ljósmyndaverka úr fjórum tengdum seríum sem Einar Falur Ingólfsson hefur unnið að á undanförnum áratug. Svissneski sýningarstjórinn Christoph Kern valdi verkin á sýninguna úr myndröðunum Griðastaðir, Skjól, Reykjanesbrautin og Sögustaðir. Í verkunum tekst Einar Falur á við manninn og íslenska náttúru; við náttúruöflin, hvernig mennirnir reyna að lifa í og með náttúrunni, laga hana að þörfum sínum, verjast henni á stundum en jafnframt leita í henni skjóls. Verkin eru öll tekin á 4 x 5 tommu blaðfilmu.
Ljósmyndaverk Einars Fals hafa á undanförnum árum verið sýnd á einka- og samsýningum í söfnum og sýningarsölum á Íslandi, á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum. Einar Falur er með BA-gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Hann starfar sem myndlistarmaður, rithöfundur og blaðamaður.
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson er fæddur 1966 á Akureyri. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík og Frakklandi. Hann hefur haldið yfir 30 einkasýningar og finna má verk hans í öllum helstu listasöfnum landsins.
Ljósmyndaverkið 360 dagar í Grasagarðinum var upphaflega unnið fyrir Listvinafélag Hallgrímskirkju. Kveikjan að verkinu er ævi og örlög Hallgríms Péturssonar, en það hefur þó mun víðtækari skírskotanir. Verkið samanstendur af um 80 ljósmyndum teknum á 360 daga tímabili í litlum skrúðgarði í Brighton á Englandi og fjallar um hringrás efnis í lífríkinu og þá eilífð og endurnýjun sem skynja má í henni.
Málverkin á sýningunni eru annars vegar „randamyndir“ unnar með endurunnum gvasslitum Karls Kvaran og hins vegar olíulitaverk þar sem myndefnið er sindrandi eða merlandi vatnsfletir.