Leið til betri heilsu og lífsgæða

Nýgengi tilfella sykursýki 2 jókst um 250% á árabilinu 2005 til 2018. Um 27% landsmanna glíma við of…
Nýgengi tilfella sykursýki 2 jókst um 250% á árabilinu 2005 til 2018. Um 27% landsmanna glíma við offitu. Anita Ragnhild Aanesen er fagstjóri og verkefnastjóri fyrir heilsueflandi móttökur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, en 325 manns með sykursýki 2 sem nýta sér þjónustu móttökunnar. mynd/MÞÞ

Anita Ragnhild Aanesen fagstjóri og verkefnastjóri fyrir heilsueflandi móttökur á HSN á Akureyri


mth@vikubladid.is

Um 500 manns á Akureyri og nágrannasveitarfélögum nýta sér þjónustu heilsueflandi móttöku Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, HSN vegna sykursýki 2. Fólk með sykursýki 2 getur lifað eðlilegu lífi með heilbrigðu líferni ef hugað er vel að því að halda  blóðsykri í jafnvægi og með hollu mataræði og hreyfingu.  HSN opnaði í apríl í fyrra heilsueflandi móttöku á Akureyri fyrir þá sem glíma við sykursýki 2 og offitu sem gjarnan fylgjast að.

Anita Ragnhild Aanesen fagstjóri og verkefnastjóri fyrir heilsueflandi móttökur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands segir að HSN reki í allt 17 heilsugæslur og heilsugæslusel, þar af eru 6 svokallaðar meginstarfsstöðvar á þéttbýlisstöðum á Norðurlandi.  „Heilsueflandi móttökur voru komnar upp á öðrum megnstarfstöðum HSN  þannig að móttakan á Akureyri var síðust í röðinni. Við opnuðum í fyrra vor og þá fengum við í hendur lista með yfir 500 manns sem tekst á við sykursýki 2. Hluti af þessu fólki er í eftirliti og meðferð á Sjúkrahúsinu á Akureyri, en á okkar lista voru um það bil 325 manns. Á tæpu ári höfum við náð að bjóða þeim öllum upp á viðtal,“ segir Anita. Hún segir að náin samvinna sé á milli stofnananna tveggja í þessum málaflokki og haldnir eru reglulegir fundir til að efla samstarfið.

Anita segir að rík áhersla sé lögð á að ná til þess fólks sem er í áhættuhópi og að bæta þjónustu við það, sem kostur er. „Þessi móttaka er liður í því að gera þetta aðgengilegt fyrir fólk sem er í hættu og það er ánægjulegt að viðtökur eru almennt góðar. Fólk þiggur að koma til okkar og taka á sínum málum í kjölfarið.“

Hún segir að í raun sé ævintýri líkast að tekist hafi að koma heilsueflandi móttöku í gang á Akureyri og taka á móti svo mörgum skjólstæðingum, í miðjum heimsfaraldri, þegar meira var verið að draga úr en auka við.  „Við erum afskaplega stolt og ánægð með að þetta hefur gengið svona vel.“

Nýgengi sykursýki 2 jókst um 250% frá 2005 til 2018

Tveir starfsmenn starfa við heilsueflandi móttökur og skipta 110% starfi. Að starfseminni koma líka sjúkraþjálfari, næringarráðgjafi, iðjuþjálfi, sálfræðingar og læknar.  Anita segir að þörf sé á að efla starfsemina, umfangið sé það mikið og til mikils að vinna að fá fólkið til sín. „Það er greinilega mikil þörf fyrir þessa þjónustu og í náinni framtíð sé ég fyrir mér að við þurfum að auka við.“

Nefnir Anita að á árabilinu frá 2005 til 2018 hafi orðið 250% aukning í nýgengni sykursýkis 2 tilfella hér á landi. „Umfangið er alveg gríðarlegt og við verðum að gera það sem hægt er til að stemma stigu við frekari aukningu,“ segir hún, en samkvæmt rannsóknum eru um 27% landsmanna, tæpur þriðjungur, greindur með offitu. Hún segir offitu eina þá stærstu áskorun sem nútíma heilbrigðiskerfi stendur frammi fyrir.

Á landsvísu er vinnuhópur á vegum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu starfandi, til undirbúnings innleiðingar á heilsueflandi móttökum í heilsugæslunni, en markhóparnir fyrir þá þjónustu eru aldraðir og fólk með fjölþættan og/eða langvinnan heilsuvanda.

Skráðu þig inn til að lesa

Fáðu þér áskrift til þess að halda áfram að lesa.

Verð frá 2.690 kr. á mánuði.

 

Nýjast