Látinn eftir stungu með eggvopni í Ólafsfirði
Karlmaður sem stunginn var með eggvopn í Ólafsfirði síðastliðna nótt lést af sárum sínum. Læknir og sjúkraflutningamenn sem komu á vettvang reyndu endurlífgunartilraunir en þær báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.
Óskað var eftir lögregluaðstoð í húsi í Ólafsfirði k. 02.34 síðastliðna nótt, en þar hafði maður verið stunginn með eggvopni. Lögreglumenn frá Akureyri héldu þegar á staðinn og lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskaga voru ræstir út. Þá voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri.
Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, sem var með áverka. Þær báru sem fyrr segir ekki árangur og maðurinn úrskurðaður látinn.
Fjórir handteknir
Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna þessa máls. Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag.
Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu segir í tilkynningu á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.