Langar þig að verða ósýnileg/ur?

Kátir krakkar að prófa þokuvélina. Mynd: MAk.is
Kátir krakkar að prófa þokuvélina. Mynd: MAk.is

Búið er að opna fyrir þokuvélina í Hofi, í henni getur maður prófað að verða ósýnilegur. Já ósýnilegur! 

Þokuvélin er „green screen“ klefi sem hægt er að stíga inn í, setja á sig t.d.  þartilgerða húfu og kviss bang höndin verður ósýnileg.  það er auðvitað kjörið tækifæri til að fanga þetta einstaka augnablik á mynd.  Ástæðan fyrir því að þokuvélin er til er sú að þann 18. febrúar er frumsýning á íslenska fjölskylduleikritinu Núnó og Júnía en Júnía önnur aðalpersónan er ósýnileg í leikritinu.

Núnó og Júnía er fjölskylduleikrit þar sem tekið er á vanda barna og unglinga í nútímasamfélagi á léttum nótum. Verkið er stútfullt af brellum en Júnía, önnur aðal sögupersónan, verður ósýnileg meirihluta þess. Slík leikhúsbrella verður í fyrsta skipti gerð nú á sviðinu í sögu Leikfélags Akureyrar og jafnvel í fyrsta skipti á landinu öllu! 

Leikritið gerist í Kaldóníu en þar er plága sem er kölluð Þokan. Hún  gerir einhvern líkamshluta fólks ósýnilegan. Oftast nær verður fólk ósýnilegra og ósýnilegra þar til það verður ósýnilegt með öllu. Líkamshlutinn hverfur ekki, hann verður bara ósýnilegur. Þokan er talin vera smitandi og því best að halda sig fjarri þeim sem smitast og koma þeim fyrir í órafjarlægð. Enn hefur ekki fundist lækning við Þokunni, en vísindamenn Kaldóníu  telja að hún leggist aðeins á þá sem skortir metnað og getu.

 Leikgerðin af Núnó og Júníu er skrifuð af Söru Martí Guðmundsdóttir og Sigrúnu Huld Skúladóttur, Þær eru Akureyringum/Norðlendingum vel kunnugar þar sem  þær skrifuðu leikgerð Pílu pínu sem sló í gegn á síðast ári. Sara og Bjarni hafa unnið saman áður fyrir Leikfélag Akureyrar en þau komu bæði að leikritinu Lífið notkunarreglur sem var sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á sínum tíma og naut mikilla vinsælda. 

 

Nýjast