27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Lagt til að gjaldskrá velferðarsviðs hækki um 10% um áramót
Lögð var fram tillaga að breytingu á gjaldskrá velferðarsviðs Akureyrarbæjar fyrir árið 2023 á síðasta fundi ráðsins en málið var þar til umræðu. Almennt er lagt til að gjaldskrá hækki um 10%, en um er að ræða hækkun í félagslegri heimaþjónustu, heimsendum mat og matarkostnaði í skammtímaþjónustu.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar lögðu fram bókanir þar sem hækkun er mótmælt.
„Í ljósi aðstæðna í efnahagsmálum telur undirrituð afar brýnt að velferðarsvið Akureyrarbæjar reyni eftir fremsta megni að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf,“ segir í bókun Elsu Maríu Guðmundsdóttir Samfylkingu. Skarpar verðhækkanir á öllum verðskrám hafi áhrif á tekjulága og viðkvæma hópa. „Nú þegar er t.d. verð á heimsendum mat mun hærra hjá Akureyrarbæ, sé litið til þeirra sveitarfélaga sem við berum okkur saman við,“ segir í bókun Elsu Maríu.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, Framsóknarflokki segir þann flokk ekki geta samþykkt þessa hækkun.
„Við slíka gjaldskrárhækkun eins og hér er lögð til er nauðsynlegt að taka tillit til þess að um ræðir okkar viðkvæmasta hóp efnalítilla einstaklinga. Þessi hópur á ekki að líða fyrir slétta 10% hækkun á alla málaflokka.“
Gjaldskrá fyrir viðkvæma hópa verði fryst
Þá lagði Málfríður Stefanía Þórðardóttir Flokki fólksins fram bókun þar sem fram kemur að flokkurinn sé alfarið á móti því að gjaldskrá fyrir t.d. félagslega heimaþjónustu, heimsendan mat og matarkostnaði í skammtímaþjónustu hækki um 10%. Hópurinn sem nýti þjónustuna sé viðkvæmur og sérstaklega nú þegar allt annað er að hækka. „Með gjaldskrárhækkunum er höggvið í þá sem minnst mega sín. Flokkur fólksins leggur til að gjaldskrár til viðkvæmra hópa verði frystar,“ segir í bókun Málfríðar.