Karl Frímannsson nýr skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Karl Frímannsson hefur verið skipaður í embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. ágúst. Hann tekur við af Jóni Má Héðinssyni sem gengt hefur stöðunni um langt árabil.
Karl hefur starfað sem sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar undanfarin fjögur og hálft ár. Áður var hann meðal annars sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar og skólastjóri Hrafnagilsskóla í 13 ár. Þá starfaði hann í mennta- og menningarmálaráðuneytinu um skeið, bæði sem verkefnastjóri og aðstoðarmaður ráðherra. Karl hefur starfsheitið kennari og viðbótarmenntun í stjórnun.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra skipaði sérstaka hæfnisnefnd utanaðkomandi sérfræðinga til að leggja mat á umsóknir. Nefndina skipuðu þau Jóhann Þorvarðarson, lögfræðingur sem jafnframt var formaður, Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor hjá menntavísindasviði Háskóla Íslands og Auður Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn. Að mati hæfninefndar komu þrír af sjö umsækjendum helst til álita til að gegna embættinu. Meðal þeirra var Karl Frímannsson sem mennta- og barnamálaráðherra mat hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.
Aðrir umsækjendur voru, Alma Oddgeirsdóttir, brautastjóri, Ásta Fönn Flosadóttir, skólastjóri,Kristín Elva Viðarsdóttir, skólasálfræðingur, Ómar Örn Magnússon, doktorsnemi, Sigurlaug A. Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri.