Kajakræðari hætt kominn við Hrísey
Rétt upp úr klukkan 14 í dag voru björgunarsveitir í Eyjafirði boðaðar út á hæsta forgangi vegna kajakræðara sem fallið hafði útbyrðis af bát sínum austan við Hrísey, um miðja vegu milli eyjar og lands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Tveir ræðarar höfðu farið út á sitt hvorum kajaknum, og tilkynnti annar þeirra um óhappið. Ræðarann rak hratt í burtu og fór svo að tilkynnandi missti sjónar á honum.
Ræðarinn var í þurrbúning, en sjávarhiti er ekki hár á þessum slóðum og því líklegt að hann myndi kólna.
Björgunarsveitir settu út báta með hraði og hófu leit, og fannst kajak hans austur af Hrísey um fimmtán mínútur í þrjú, og maðurinn skömmu síðar, heill á húfi og bar sig vel. Fólkið fór um borð í Hríseyjarferjuna, sem tók þátt í leit, sem flutti þau upp á Árskógsand.