27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Jaðarsvöllur Yfir 25 þúsund hringir leiknir í sumar
Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar eru að finna upplysingar um aðsókn á völlinn í sumar og er óhætt að fullyrða að Jarðarsvöllur er gríðarlega vinsæll. S.l sumar það þriðja besta í aðsókn frá þvi að mælingar hófust og það þrátt fyrir að tíðarfarið hafi vel mátt vera betra.
Annars er færslan á vef GA svona.
,, Eftir gríðarlega stór sumur 2020 og 2021 voru spilaðir hringir á Jaðarsvelli færri í ár en undanfarin tvö ár. Fjöldi skráðra hringja á vellinum í ár voru 25.326 hringir sem er það þriðja mesta frá því að talningar hófust en fleiri hringir voru spilaðir 2020 og 2021. Þó voru að meðaltali 175 hringir spilaðir á dag í ár sem er það næst mesta frá upphafi talninga. Í júní, júlí og ágúst voru spilaðir að meðaltali 200 hringir.
Völlurinn var opinn í 145 daga í sumar sem eru færri dagar en undanfarin ár en hann var opnaður 16. maí. Veðrið var ekki eins gott og síðasta sumar og mátti sjá að hinn íslenski ferðamaður fagnaði því að geta loksins kvatt hömlurnar sem fylgdu Covid-19 faraldrinum og fóru erlendis í golfferðir“.