Hvetja til tillitssemi á Bíladögum
Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarbæ, Bílaklúbbi Akureyrar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili, funduðu nýverið um Bíladaga 2022 sem hefjast fimmtudaginn 16. júní, og lýkur formlega með spólkeppni (Burnout) laugardaginn 18. júní.
Mikil áhersla verður lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar eru í óða önn að koma upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt.
Siðareglur Bíladaga:
- Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
- Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt