20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Húsavíkurbær rampaður upp
Bæjarbúar á Húsavík hafa eflaust tekið eftir framkvæmdum undanfarið fyrir framan valin fyrirtæki og stofnanir í bænum. Hér er verið að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða en það er verkefnið „Römpum upp Ísland“ sem stendur fyrir framkvæmdunum.
Römpum upp Ísland (RUÍ) er ríflega tveggja ára gamalt verkefni, en því var formlega hleypt af stokkunum þann 11. mars 2021.
Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi . Það er Haraldur Þorleifsson, fyrrverandi stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, sem er hvatamaður verkefnisins og hefur lagt í það mikla fjármuni úr eigin vasa. Einnig eru í stofnfé sjóðsins framlög einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra um allt land.
Markmiðið fyrst var 1000 rampar um allt Ísland á 4 árum, núna er búið að hækka markmiðið í 1500 rampa á 4 árum og gengur verkefnið vonum framar enda málsstaðurinn góður.
Staðsetning rampa sem verið er að vinna að á Húsavík er eftirfarandi:
• Garðarsbraut 5, v. Krambúðina -
• Garðarsbraut 15 fyrir framan Hárform -
• Garðarsbraut 15 Heimabakarí -
• Garðarsbraut 26 Fundarsalur Stéttarfélaganna -
• Suðurgarður 2, Ísfell –
• Laugarbrekka 26, Cape Hotel -