Húsasmiðjan reisir um 5000 fermetra nýtt húsnæði á Akureyri
Vinna við uppsteypu sökkla er senn að hefjast á nýrri lóð Húsasmiðjunnar við Freyjunes á Akureyri. Mynd: Margrét Þóra.
Hafnar eru byggingarframkvæmdir á nýrri verslun Húsasmiðjunnar við Freyjunes á Akureyri. Flyst þar með starfsemin frá Lónsbakka þar sem hún hefur verið um árabil í nýtt húsnæði í Nesjahverfi. Morgunblaðið greindi fyrst frá þessu. Verslunin verður um 5.000m2 að stærð og er stefnt að því að opna verslunina á síðari hluta næsta árs. Nýja verslunin verður nær miðju Akureyrar og þykir staðsetningin henta betur fyrir smásöluverslun.