20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Hópastarf og einstaklingsþjónustu fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur
Í síðasta þætti í 1. seríu heilaogsal.is - hlaðvarp, fræða Eva Björg og Marta Kristín hlustendur um Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.
Þær kynna starfsemi félagsins þar sem m.a. er boðið upp á hópastarf og einstaklingsþjónustu fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Þær segja einnig frá því hvernig hægt er að óska eftir þjónustu og hvernig hægt er styrkja félagið með því að gerast félagsmaður.
Þær taka vel á móti spurningum og vangaveltum sem gætu hafa vaknað við hlustun þáttarins. Þið finnið nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins