Hlökkum til sumarsins með góðri viðbót við okkar starfsemi -segir Haraldur Þór Egilsson safnstjóri
„Við hlökkum til sumarsins með þessari góðu viðbót við okkar starfsemi,“ segir Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri en samkomulag hefur verið gert milli safnsins og Eyjafjarðarsveitar um að Minjasafnið taki að sér rekstur Smámunasafnsins sem staðsett er í Sólgarði. Gildir samningurinn út þetta ár. Smámunasafnið verður opnað í dag, fimmtudaginn 22. júní og verður opið í sumar fram til 20. ágúst frá miðvikudegi til sunnudags frá kl. 13 til 17.
Auk Minjasafnsins á Akureyri og Minjasafnskirkjunnar hefur safnið umsjón með Nonnahúsi, Davíðshúsi, Leikfangahúsinu og Laufási. Smámunasafnið verður því sjötta safnið eða sýningarstaðurinn sem Minjasafnið rekur á Eyjafjarðarsvæðinu. „Það fer að verða einfaldara að telja upp það sem heyrir ekki undir Minjasafnið. Sýningarstarfið er orðið talsvert umfangsmikið og margt starfsfólk sem kemur til okkar á sumrin til að taka á móti gestum. Þess fyrir utan er svo allt safnastarfið sem er á bakvið tjöldin. Gesturinn sér aðeins toppinn af ísjakanum.“
Sverrir Hermannsson gaf Eyjafjarðarsveit safn sitt árið 2003 með því skilyrði að undir það fengist rúmgott húsnæði. Hann hafði áður haldið sínum safngripum til haga við heimili sitt í Aðalstræti 38 á Akureyri, en Sverrir var Innbæingur, fæddur árið 1928. Hann lést sumarið 2008. Sverrir var húsasmíðameistari að mennt og sérhæfði sig í að gera upp gömul hús. Fékk hann margvíslegar viðurkenningar fyrir ómetanleg störf sín á því sviði. Hann fór meðal annars höndum um mörgu af elstu og sögufrægustu húsum á Akureyri, auk þess að tak þátt í endurgerð og viðhaldi kirkna í Eyjafirði. Sverrir átti tengingu við gamla Saurbæjarhreppi þar sem Sólgarður er, en hann var þar vinnumaður ungur að árum.
Kaffi, kýr, kirkja og myndlist
Sólgarður er elsta samkomuhús Eyjafjarðarsveitar. Rétt ofan við það stendur Saurbæjarkirkja. Gera má ráð fyrir að fjöldi manns heimsæki staðinn í sumar, því nýja kennileiti Eyjafjarðarsveitar, Kýrin Edda, listaverk eftir Beate Stormo verður staðsett þar. Þá verður bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á myndlistarsýningar og verður Samúel Jóhannsson með sýninguna í sumar. Í haust verður Minjasafnið með sýningu á ljósmyndum og gripum sem safnið varðveitir en eiga uppruna sinn í Eyjafjarðarsveit. „Það verður kaffisala nú sem áður enda löng hefð fyrir bíltúr fram í sveit til að fá sér kaffi og um að gera að skoða safnið og kúna í leiðinni“ segir Haraldur.
Gripirnir sem smiðurinn, völundurinn, Sverrir Hermannsson, eru af ýmsum toga, verkfæri, notaðir blýantar, grammófónnálar, heimilistæki. „Smámunasafnið er ekki eiginlegt minjasafn“ segir Haraldur. „Það má segja að það sé nær því að vera listsýning sem gerð er úr fjölbreytileika þeirra muna sem umlykja okkur án þess að við tökum endilega eftir því. Sjón er því söguríkari og ástæða til að gera sér ferð fram í Sólgarð á Smámunasafn Sverris".
Samúel Jóhannsson sýnir málverk á Smámunasafninu