Hlaupið 1. apríl í vitann á Oddeyrarbryggju
Margir hlupu eflaust 1. apríl í gær enda um skemmtilega þjóðlega hefð að ræða.
Vikublaðið tók að sjálfsögðu þátt í þessari hefð, í þetta sinn í samvinnu við Hörð Geirsson og Þórhall Jónsson. Greint var frá því að þeir félagarnir hafi verið að skoða myndir sem teknar voru á nýjan dróna sem þeir prófuðu á Tangabryggju.
Við skoðun á myndunum hafi komið í ljós heillegt skipsflak.
Þá var greint frá því að á milli kl 14 og 16 í gær hefði mátt skoða muni sem búið var að bjarga úr flakinu, í Vitanum sem staðsettur er á Oddeyrarbryggju.
Þetta var að sjálfsögðu aprílgabb og þótti takast ákaflega vel.