Heiðrún Jónsdóttir stjórnarformaður Íslenskra verðbréfa
Heiðrún Jónsdóttir héraðsdómslögmaður var kjörin stjórnarformaður Íslenskra verðbréfa hf. á aðalfundi félagsins sem haldinn var í síðustu viku. Aðrir í stjórn eru Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er varaformaður og Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds
Svo sem fram hefur komið nam hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa 138 milljónum króna á liðnu ári en félagið hefur skilað hagnaði óslitið frá árinu 2002. Eignir í stýringu námu 112 milljörðum króna í árslok 2013 og ávöxtun eignasafna í umsjá félagsins var með besta móti.
Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og starfsmenn félagsins eru 19 talsins. Framkvæmdastjóri er Sveinn Torfi Pálsson.