Hátt í 7000 manns skoðuðu fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík s.l. laugardag
Fiskidagurinn mikli fór fram s.l laugardag á Dalvík og að venju með miklum glæsibrag. Þetta var í tuttugasta sinn og er áætlað að nokkuð á fjórða tug þúsunda hafi heimsótt Dalvík þessa helgi. Samherji sem ætíð hefur stutt vel við bakið á Fiskideginum mikla fagnar á þessu ári fjörtíu ára afmæli og þar á bæ gripu menn tækifærið og opnuðu fiskvinnsluhúsið nýja fyrir gestum og gangandi. Óhætt er að segja að áhugi fyrir því að skoða húsið hafi verið mikill því hátt í 7000 manns litu við.
Á heimasíðu Samherja segir frá þessu:
,,Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að afar ánægjulegt hafi verið að sýna húsið á þessum degi. Stemningin á Dalvík er einstök á Fiskideginum mikla, samstaða íbúanna er mikil og hlýhugur og gleði allsráðandi. Í mínum huga undirstrikar hátíðin með skýrum hætti að Dalvíkingar eru stoltir af því að sjávarútvegur er helsta atvinnugreinin, enda eru þeir sjómenn og fiskvinnslufólk í fremstu röð.
Samherji er stór vinnuveitandi í sveitarfélaginu og við bjóðum gestum hátíðarinnar að smakka afurðir okkar með mikilli ánægju og stolti.
Ég þakka þeim sem sjá um framkvæmd hátíðarinnar kærlega fyrir einstaklega farsæla samvinnu í gegnum árin en fyrst og fremst er Fiskidagurinn mikli risastórt heimboð íbúanna og þökkum við Dalvíkingum fyrir óviðjafnanlegar móttökur."
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Elisa Reed forsetafrú skoðuðu fiskvinnsluhúsið. Sigurður Jörgen Óskarsson yfirverkstjóri og Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu fræddu forsetahjónin um starfsemina.
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja tók á móti gestum í anddyri fiskvinnsluhússins
Hátt í sjö þúsund manns skoðuðu fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík