Hagsmunir almennings verði hafðir að leiðarljósi í Vaðlareit

Fundurinn var afar góður og fundarfólk jákvætt gagnvart framtíð félagsins sem er í miklum vexti og þ…
Fundurinn var afar góður og fundarfólk jákvætt gagnvart framtíð félagsins sem er í miklum vexti og því við hæfi að skála í sjóðheitu ketilkaffi. Mynd SE

Töluverðar umræður um framkvæmdir í Vaðlareit, sköpuðust á aðalfundi Skógræktarfélags Eyjafjarðar sem haldinn var í fyrrakvöld. Vaðlareitur hefur mikið verið til umræðu undanfarna mánuði enda mikið um að vera í reitnum.

Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem lýst var yfir fullu trausti á störfum stjórnar og framkvæmdastjóra hvað varðar framkvæmdir í Vaðlareit og hugsanlega samninga þar að lútandi. „Fundurinn leggur áherslu á að hagsmunir almennings verði hafðir að leiðarljósi hvað varðar aðgengi að skógarreitum félagsins hér eftir sem hingað til,“ segir í ályktun.

 Fundurinn hófst á fjarflutningi Sylgju Daggar Sigurjónsdóttur, lýðheilsufræðings hjá Eflu, um mikilvægi náttúru í manngerðu samfélagi. Þar lagði hún sérstaka áherslu á jákvæð áhrif gróðurs á loftgæði og fjölbreytta örveruflóru, sem vakti fundargesti sannarlega til umhugsunar. Mikil loftgæði utanhúss gefa möguleika á miklum loftgæðum innanhúss sem eru mikilvæg heilsu okkar og vellíðan segir í tilkynningu um aðalfund SE.


Þjónustusamningur miklvægur

 Formaður SE, Sigríður Hrefna Pálsdóttir, hélt opnunarræðu aðalfundarins og fór ítarlega yfir störf félagsins undanfarið ár en verkefnin hafa verið fjölbreytt sem áður. Í ræðunni minntist hún á undirritun nýs þjónustusamnings við Akureyrarbæ sem hefur það í för með sér að nú verður mun auðveldara að uppfylla þær skyldur sem samningurinn felur í sér. Þá var enn fremur kynntur styrktarsamningur við Eyjafjarðarsveit til tveggja ára og eingreiðslustyrkur Hörgársveitar til uppbyggingar í Laugalandsskógi.

Sigríður Hrefna sagði við það tilefni: „Við erum mjög þakklát fyrir að búa í samfélagi sem sér hversu mikilvægir góðir útivistarskógar eru og hvað góðir útivistarskógar búa til mörg tækifæri fyrir alls konar hreyfingu og félagsskap.“

Nýjast