Hafna öllum umsóknum um starf rekstarstjóra hafna Norðurþings
Á fundi hafnarstjórnar Norðurþings í gær lágu fyrir umsóknir sem bárust um starf rekstrarstjóra hafna Norðurþings, umsóknarfrestur um starfið rann út þann 8. ágúst sl.
Stjórn hafnasjóðs hafnaði þeim umsóknum sem bárust um starfið en í bókun ráðsins segir að það sé gert í ljósi þess að umtalsverðar breytingar séu fyrirséðar á rekstri hafna Norðurþings á næstu mánuðum.
„Hafnastjórn felur sveitarstjóra að vinna að lausnum til að brúa bilið í málum sem tengjast rekstri hafnarinnar til skamms tíma,“ segir í bókuninni.