20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Gera tilraun með heimgreiðslur
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti í febrúar síðastliðnum reglur um heimgreiðslur til foreldra/forráðamanna. Markmið þeirra er að koma til móts við foreldra frá því bili sem þeir ljúka töku fæðingarorlofs þar til barn er innritað hjá dagforeldri eða býðst leikskólapláss ásamt því að koma til móts við foreldra/forráðamenn eldri barna sem bíða eftir leikskólaplássi. Foreldrar/forráðamenn hafa rétt á að sækja um heimgreiðslur frá því að barn nær 12 mánaða aldri. Um er að ræða tilraunaverkefni frá 1. september 2023 til 31. júlí 2024. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.
Sótt er um heimgreiðslurnar í Þjónustugátt Akureyrarbæjar. Gildistími heimgreiðslna miðast við næstu mánaðamót eftir að barn nær 12 mánaða aldri. Dæmi: Foreldri/forráðamaður barns sem er fætt 6. september 2022 getur sótt um greiðslur fyrir októbermánuð 2023 ef barnið er ekki hjá dagforeldri eða í leikskóla. Reikningur greiðist eftir á fyrir nýliðinn mánuð, sem er í þessu tilviki í lok október.
Upphæð heimgreiðslu verður 105.000 kr. á mánuði og tekur breytingum í upphafi árs samhliða ákvörðun um gjaldskrárbreytingar. Greiðslur falla niður þegar barni býðst leikskólapláss, byrjar í leikskóla eða byrjar hjá dagforeldri.