Gefa 40 úkraínskar bækur
Þjóðhátíðardagur Úkraínu er í dag, 24. ágúst og af því tilefni ætla úrkanískir Akureyringar að færa Amtsbókasafninu á Akureyri 40 nýjar bækur á sínu tungumáli. Þær eru bæði fyrir börn og fullorðna. Bækurnar verða til útláns í millisafnaláni fyrir úkraínska lesendur í öðrum sveitafélögum.
Athöfn hefst kl. 17 í dag á Amtsbókasafninu og þar verða úkraínskar bækur kynntar og Úkraínumenn búsettir á Akureyri færa safninu nýju bækurnar formlega.
Eftir kynninguna verður hægt að fá nýju bækurnar að láni í gegnum bókasafnið.
Einnig verður boðið upp á kaffi og kökur.