Gamlar myndir til sölu

Ráðhústorgið á Akureyri 1961
Ráðhústorgið á Akureyri 1961

 Í fyrsta skipti í 50 ára sögu Minjasafnsins á Akureyri er heil ljósmyndasýning til sölu.Hér er um að ræða ljósmyndasýninguna MANSTU – Akureyri í myndum sem sett var upp í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Sýninguna prýða ljósmyndir frá ýmsum tímum eftir ólíka ljósmyndara.

 Þetta er skemmtilegt tækifæri fyrir unga sem aldna Akureyringa, brottflutta, aðflutta og vini Akureyrar  til þess að eignast mynd eða gefa ljósmynd til að prýða veggi heimilisins eða vinnustaðarins. Á sölusýningunni má sjá marga konfektmola fyrir áhugasama um sögu Akureyrar í myndum og fagurkera sem sjá myndir á vegg sem augnkonfekt og gera hús að heimili .

Vit þú eignast mynd af til dæmis spekingslegum strákpjöttum á gúmmískóm í fjörunni á Akureyri um 1960, byggingasmiðum við smíði norðurhluta Torfunesbryggju 1927, kaupvangstrætinu (Gilinu) uppúr 1960, Fjörunni 1850, Ráðhústorginu 1922 sem þá var kallað „Sóðavík“  og/ eða smábátahöfninni við slippinn 1957?? Viltu eignast fyrstu litmyndina af Akureyri sem tekin var 1943 eða myndir úr verksmiðjunum  Sjöfn, Flóru og kjötiðnaðarstöðinni Kea frá 1966 nú eða mynd af Akureyri 1962?

Áttu laust veggpláss?? Viltu eignast fallega ljósmynd eða gefa öðruvísi gjöf?

Ef svo er þá skaltu ekki láta ljósmyndasölu Minjasafnsins á Akureyri helgina  24. og 25. nóvember kl 14-16 fram hjá þér fara!

(fréttatilkynning)

 

 

Nýjast