Fyrsti stjórnarmaður sem ekki er fangi eða aðstandandi
Á aukaaðalfundi Afstöðu, félags fanga á Íslandi, fyrir stuttu var samþykkt að Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur myndi taka sæti í stjórn félagsins. Aðalheiður verður fyrsta konan til að taka sæti í stjórn Afstöðu og einnig fyrsti stjórnarmaður félagsins sem ekki er sjálf fangi eða aðstandandi fanga. Aðalheiður kemur frá Húsavík en hefur um nokkurra ára skeið verið búsett í Reykjavík þar sem hún hefur starfað fyrir þingflokk Pírata.
“Afstaða hefur undanfarin ár barist ötulega fyrir auknu vægi betrunar í stað refsistefnu með það að markmiði að fækka endurkomum í fangelsi. Við þessa hagsmunagæslu er mikilvægt að hafa talsmann og erindreka utan fangelsisins enda mikið starf unnið þar. Mikilvægt er að fangar geti komið umkvörtunarefnum og því sem miður fer á framfæri við fjölmiðla og stjórnvöld án þess að þurfa að óttast afleiðingar þess í afplánun sinni, en fangar eru eðli málsins samkvæmt í þeirri aðstöðu að eiga alla sína velferð undir þeim sem fangelsunum stýra og því kann þeim að virðast erfitt að gagnrýna sömu aðila opinberlega. Þátttaka Aðalheiðar, sem sjálfstæðrar stjórnarkonu, í stjórn Afstöðu mun auka trúverðugleika og vigt félagsins og er mikilvægt skref til þess að halda hinu góða starfi áfram.
Aðalheiður hefur bæði reynslu og menntun sem vafalaust mun nýtast í starfi félagsins. Hún er lögfræðingur og hefur nýverið látið að störfum sem starfsmaður þingflokks Pírata á Alþingi. Það hefur varla farið fram hjá neinum sem fylgst hafa með umræðum um málefni fangelsa hér á landi að Píratar hafa látið sig málaflokkinn mjög varða. Aðalheiður hefur heimsótt flest fangelsi landsins á undanförnum árum og hefur stjórn Afstöðu átt við hana mjög góð samskipti. Nú hefur samvinnan verið sett í formlegri farveg og mun félagið njóta krafta hennar sem fullgilds stjórnarmanns,” segir í tilkynningu frá Afstöðu
Afstaða, félag fanga er forvarnar, fræðslu og hagsmunafélag fanga og annarra áhugamanna um fangelsismál. Markmið félagsins er að stuðla að betrun í afplánun og upplýsa fanga, aðstandendur, almenning og stjórnvöld um framgang í forvarnarstarfi og nýjungum í betrunarmálum.