Fundargerð Veðurklúbbs Dalbæjar áttunda maí. 2023
Mætt voru, Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Sigríður Hafstað, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Jón Garðarsson, Kristján Loftur Jónsson og Þóra Jóna Finnsdóttir.
Mikið er dásamlegt hve margir hafa nú þegar sýnt því áhuga að tengjast okkur á andlitsbókinni, eftir þennan stutta tíma síðan við ákváðum að flækjast í netið þá eru rúmlega 1250 manns búin að vingast við okkur og þökkum við kærlega fyrir stuðninginn og áhugann.
Vegna veikinda er fundurinn í seinna lagi.
Hæðarennan austan við Grænland náði að hafa meiri áhrif á veðrið undanfarið en við höfðum gert ráð fyrir. Núna teljum við að nýtt tungl fái loksins að hafa áhrif á veðrið því það virðist ætla að verða bara svipað út mánuðinn og verið hefur undanfarna viku hérna á Stór Dalvíkursvæðinu, nefnilega hæglætis veður en mest norðlægar áttir með ágætis köldu vori. En um Hvítasunnuhelgina gæti aðeins kólnað og ef einn draumurinn stenst þá verða annaðhvort skriðuföll eða jafnvel jarðhræringar á þeim tíma, en þó ekkert hræðilegt. Í framhaldi af því þá rifjuðum við upp upplýsingar um Dalvíkurskjálftann sem hristi all rækilega þessar slóðir þann annan júní árið 1934. Þá kom einnig stór skjálfti úti á Skagafirði 1963 sem við skoðuðum upplýsingar um.
Við skoðuðum hvar hafísinn hafi haldið sig undanfarin mánuð og búumst ekki við neinum ísbjörnum hingað til lands þetta árið.
Fleira var spjallað og spekúlerað en það fáið þið ekki frekari upplýsingar um, en þið sem getið og viljið, getið svo bara mætt á næsta fund til að taka þátt og fræðast frekar um Veðurklúbbinn, fundina og hvað fer þar fram
Ef þú ferð að skjálfa
Þú þyrftir þig þjálfa
Því það er sko undur
Að þekkja ekki sundur
Kálfana sína og álfa.
Höf. Bjór.
Þegar að maí var svo mildur
Þá sagði hún ungfrú Grimmhildur
Nú vorverkin kalla
Sko á ykkur alla
Að gera ykkur skömm eða skyldur.
Höf. Bjór