Framtíð körfuboltans hjá Þór tryggð
Karlalið Þórs í körfuknattleik mun leika í Domino´s deildinni í vetur eins og til stóð. Í gær var greint frá því á vefnum karfan.is sem og mbl.is að til stæði að draga karlalið Þórs úr keppni í Dominos´deildinni sökum þess hve fáar hendur komi að starfinu. Í frétt á heimasíðu Þórs segir að rétt sé að stjórnin var heldur fámenn og því var boðað til samstöðufundar í Hamri þar sem framtíð körfuboltans var rædd.
"Á fimmta tug áhugafólks mætti á fundinn og gott spjall var tekið um stöðu körfuboltans hjá Þór. Fór svo að fram stigu fimm einstaklingar sem buðu sig fram til stjórnarsetu ásamt núvernandi stjórn. Auk þessa steig upp fjöldi stuðningsmanna sem bauð sig fram í hin ýmsu fjáröflunarverkefni," segir á vef Þórs.
Þar er einnig tekið fram að þótt nú hafi margar hendur bæst í bakvarðarsveit deildarinnar þá sé enn pláss fyrir áhugasamt fólk sem vill leggja deildinni lið og vinna með skemmtilegu fólki við áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Akureyri. Hægt er að senda tölvupóst á netföngin karfan.stjorn@thorsport.is eða reimar@thorsport.is