Frábær árangur Alex
Alex Cambray Orrason keppti fyrir hönd Íslands á kraftlyftingamóti í Frakklandi um s.l. helgi á Vestur Evrópuleikunum með góðum árangri.
Alex lyftir í búnaðarlyftingum og gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði í sínum þyngdarflokki og einnig opnum flokki
Árangur hans var sem hér segir.
Hnébeygja: 347.5kg sem er Íslands og Vestur Evrópumet.
Bekkpressa: 212.5kg.
Réttstöðulyftu: 277.5kg.
Þetta skilaði Alex 837.5kg í samanlagðri þyngd en það er bæting hjá kappanum um 40kg.
Óhætt að segja að þessi árangur sé stórglæsilegur hjá Alex.