Fjölmennt í Grímsey á Fiskehátíð

Daniel Willard Fiske situr að tafli
Daniel Willard Fiske situr að tafli

Í dag, 11. nóvember, er haldið upp á fæðingardag velgjörðarmanns Grímseyinga, Bandaríkjamannsins Daniels Willards Fiske, en sá dagur er ávallt haldinn hátíðlegur í Grímsey.

Boðið verður upp á hlaðborð í félagsheimilinu Múla í kvöld kl. 18.00, lesið verður ágrip um Fiske, sem fæddur var 1831, haldin verður krágáta (pubquiz) og í framhaldinu boðið upp á dansskemmtun þar sem Kiwanismenn þeyta skífum fram á kvöldið.

Frekar fjölmennt hefur verið út í eyju það sem af er hausti, segir Karen Nótt Halldórsdóttir, sem er í kvenfélaginu Baugi, en félagið hefur séð um skipulagið á hátíðinni óslitið frá stofnun þess árið 1957. Óvenjulega margir gert út frá eyjunni í haust og bættist við einn netabátur í haust sem stefnir á að gera út frá Grímsey. Búist er við að um 45 manns verði á skemmtuninni í kvöld og hefðu verið fleiri ef ferjan hefði geta siglt í morgun, en ferðinni var aflýst sökum ölduhæðar.

Saga Daniels Willards Fiske er um margt óvenjuleg en hann gerðist mikill velgjörðarmaður Grímseyinga á 19. öld þrátt fyrir að hafa aldrei komið til Grímseyjar, einungis siglt einu sinni í námunda við eyjuna. Sem ungur maður fékk Fiske mikinn áhuga á Íslandi og lærði íslensku í Kaupmannahöfn þar sem hann kynntist m.a. Íslendingum þegar hann nam þar norræn fræði.

Í Grímsey má ennþá finna muni sem hann gaf til eyjarinnar, meðal annars töluvert magn bóka. Þar eru einnig minnismerki og söguskilti um Fiske, auk þess að í flugstöðinni á staðnum hefur verið sett upp örsýning þar sem fræðast má um Fiske og sjá má nokkra muni úr gjöf hans.

Frá þessu segir á www.akureyri.is

Nýjast