ELKO opnar á Akureyri á morgun

Verslunin verður hin glæsilegasta.
Verslunin verður hin glæsilegasta.

ELKO opnar 1.000 fermetra verslun sína á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 10. desember. Opnun ELKO á Akureyri hefur staðið til um þó nokkuð skeið en ýmsar áskoranir hafa komið upp við að opna nýja verslun við 10 manna samkomutakmarkanir.

„Með opnuninni er ELKO að stíga stórt og mikilvægt skref í átt að því að færa þjónustuna ásamt gríðarlegu vöruúrvali nær viðskiptavinum sínum á Norðurlandi, en viðskiptavinir hafa margir hverjir beðið lengi eftir þessari opnun,“ segir Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ELKO á Akureyri, í tilkynningu.

Verslunin mun opna kl. 11:00 á morgun en er hún staðsett við Tryggvabraut 18, með aðgengi frá Furuvöllum. Í tilkynningu segir að verslunarrýmið sé hið glæsilegasta, enda innréttað og sett upp í glænýju verslunarútliti ELKO. Hugað verður að öllum sóttvörnum eins og best verður á kosið, grímuskylda í verslun og viðskiptavinir taldir inn, líkt og í öllum öðrum verslunum ELKO.

Til að forðast miklar raðir í og við verslunina verður áframhaldandi áhersla sett á vefverslun, elko.is og mismunandi afhendingarmáta um allt land. Boðið verður upp á fría heimsendingu á smærri vörum þegar verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira í vefverslun ELKO alveg fram að jólum og er jólaskiptimiði á öllum vörum, sem gildir til 24. janúar.

„Það er því algjör óþarfi að hópast í verslanir fyrir eða eftir jól en við hlökkum þó til að taka á móti öllum þeim viðskiptavinum sem leggja leið sína í ELKO á aðventunni og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að jákvæðri upplifun viðskiptavina okkar, en búast má við einhverjum röðum í núgildandi samkomutakmörkunum á háannatímum“ segir Haukur.

„Ég er ekki í vafa um að koma Elko norður yfir heiðar verður mikil lyftistöng fyrir bæinn og komi til með að hafa víðtæk áhrif,“ segir Haukur Már en tíu starfsmenn verða í fullu starfi í versluninni og má reikna með öðru eins í hlutastarfi.

 

Nýjast