27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri
Um kl. 10:40 í morgun var lögregla kölluð til vegna umferðarslyss er átti sér stað við Strandgötu á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að gangandi vegfarandi hafi orðið fyrir bíl og eru meiðsli hans talin alvarleg. Hinn slasaði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um líðan eða meiðsli hins slasaða.
Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og er vinna rannsóknardeildarinnar á vettvangi langt komin. Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um þau að svo stöddu.