13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri
Umferðarslys var nú um kl. 13 á Glerárgötu við Grænugötu á Akureyri en þar var ekið á gangandi vegfaranda og var hann fluttur á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri til aðhlynningar. Lögreglan á Akureyri greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni.
Þar segir að unnið sé að rannsókn málsins og er því Glerárgata milli Þórunnarstrætis og Gránufélagsgötu lokuð fyrir umferð í báðar áttir. Vegfarendur er beðnir um að sýna tillitsemi og þolinmæði.