Eiður Stefánsson, formaður FVSA með ákall til bæjarstjórnar Akureyrar
Eiður Stefánsson formaður FVSA sendi nú eftir hádegið frá sér ákall til bæjarstjórnar Akureyrar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Ákall til bæjarfulltrúa um hófsemi!
Hart er lagt að verkalýðshreyfingunni að gæta hófsemi í launakröfum í yfirstandandi kjaraviðræðum, stefið er að of háar kröfur myndu hleypa verðbólgunni upp. Það gleymist hisvegar að það sem af er ári hafa heimilin sýnt gríðarlegan sveigjanleika til að mæta verðhækkunum á mat, eldsneyti og öðrum aðföngum í skugga stríðs og heimsfaraldurs. Þá er ótalin hækkun stýrivaxta með tilheyrandi áhrifum á lánaafborganir og leigugreiðslur.
Krafan þarf að ná til allra
Verkalýðshreyfingin byggir á samtakamætti og í krafti fjöldans höfum við náð fram kjarabótum og réttindum sem í dag teljast sjálfsögð. Þegar illa árar í samfélaginu, eða líkt og nú á heimsvísu, er eðlilegt að gera kröfu á hófsemi, en sú krafa þarf að ná til allra. Þar ættu að sitja jafnt til borðs, verkalýðshreyfingin, atvinnurekendur, ríki og sveitarfélög. Fréttir af hækkun gjaldskrár Akureyrarbæjar um 7-10% verða að teljast allt annað en hófsamar og virka sem eldsneyti á verðbólgubálið. Hækkunin heggur þar sem nú þegar er mikið af tekið, á heimilum fjölskyldufólks. Þar vega einna hæst hækkanir á fasteignagjöldum, en húsnæðiskostnaður heimilana hefur þegar rokið upp úr öllu valdi sökum verðbólgu. Þolmörkum heimilana er ógnað og þau geta ekki meira. Því er óvægið af hálfu fulltrúa í bæjarstjórn að hækka gjaldskrár í stað þess að taka á rekstrarvanda Akureyrarbæjar innanfrá. Eina úrræði bæjarbúa til að mæta slíkum hækkunum er að krefjast hærri launa.
Mætumst á miðri leið
Við samningaborðið er eðlilegt að gera málamiðlanir, sumt fæst í gegn og annað ekki, en á endanum verður samkomulag og sátt sem allir una við. Verkalýðshreyfingin getur ekki mætt að borðinu með hófsemi ef það sama gengur ekki yfir alla, við verðum að mætast á miðri leið og beita sameiginlegum samtakamætti til að rétta úr kútnum.
Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni