20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Drög að breytingu á deiliskipulagi við Viðjulund 1 og 2
Á heimasíðu Akureyrar er að finna i dag tilkynningu um tillögu sem er á vinnslustigi eins og segir og snertir deiliskipulag á lóðum við Viðjulund 1 og 2. Skipulagstillagan gerir ráð fyrir að í stað núverandi byggingar á lóð Viðjulundar 1 verði reist tvö sex hæða íbúðarhús með þremur íbúðum á hverri hæð auk geymslukjallara undir báðum húsum. Jafnframt gerir tillagan ráð fyrir hálfniðurgrafinni bílgeymslu auk bílastæða á þaki.
Samhliða þessari breytingu er gerð minniháttar breyting á afmörkun deiliskipulags íbúðasvæðis við Furulund.