Hverfisnefnd vill gera betur í bílastæðamálum
Hverfisnefnd Naustahverfis á Akureyri skorar á bæjarfyrvöld að gera betur í bílastæðamálum við Naustaskóla og Naustatjörn. Bæjarráð tók erindið fyrir í morgun og vísaði því til framkvæmdadeildar. Í bókun hverfisnefndarinnar er bent á þann möguleika að gera snúningshaus á mörkum Klettatúns og Hólmatúns, auk bílastæða. Bendir hverfisnefnd á að fjölgun barna í leikskólanum með tveimur deildum staðsettum í Naustaskóla fylgi án nokkurs vafa meiri umferð við skólana á álagstímum, enda sé flestum leikskólabörnum ekið í leikskólann þó leiða megi að því líkum að grunnskólabörnin komi frekar gangandi eða hjólandi, segir í bókun nefndarinnar.