Byggingareitur við GA verður stækkaður

Jaðarsvöllur. Mynd: Golfklúbbur Akureyrar
Jaðarsvöllur. Mynd: Golfklúbbur Akureyrar

mth@vikubladid.is

Samþykkt hefur verið í skipulagsráði að gera breytingu á deiliskipulagi við Jaðarsvöll í þá veru að stækka fyrirhugaðan byggingarreit vestan við núverandi klúbbhús. Golfklúbbur Akureyrar óskaði eftir breytingunni.

Núverandi klúbbhús GA er ríflega 500 fermetrar á tveimur hæðum, byggt árið 1981. Skilgreindur er byggingareitur út frá húsinu fyrir hótelbyggingu og aukið rými fyrir golfklúbbinn og kæmi það rými til vesturs frá núverandi byggingu, en aðrar byggingar til suðurs og austurs. Á hótelinu er gert ráð fyrir gistirými fyrir allt að 100 herbergi, ráðstefnuaðstöðu, auk rýmis fyrir aðra aðstöðu og afþreyingu.

Nýjast