20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Brotið sýnt í Borgarbíói
Heimildarmyndin Brotið verður sýnd í Borgarbiói á Akureyri dagana 11., 12. og 13. nóvember kl. 18. Þar er fjallað um sjóslysin á utanverðum Eyjafirði í hamfaraveðrinu 9. apríl 1963 þegar sjö sjómenn fórust með tveimur bátum frá Dalvík. Brotið var frumsýnt á Dalvík í Fiskidagsvikunni í sumar og síðar í Ólafsfirði og Reykjavík. Myndin fær lofsamlega dóma áhorfenda. Aðstandendur Brotsins eru Haukur Sigvaldason trésmiður, María Jónsdóttir margmiðlunarhönnuður og Stefán Loftsson kvikmyndagerðarmaður. Þau eiga öll rætur á Dalvík. Sigvaldi faðir Hauks og afi Stefáns var meðal þeirra er fórust.