20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Breyttur rekstur kvennaathvarfs á Akureyri
Árið 2020 hófu Samtök um kvennaathvarf, SUK, tilraunaverkefni um rekstur neyðarathvarfs á Akureyri í samvinnu við Bjarmahlíð, sveitarfélög á Norðurlandi eystra, Aflið, félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Tilraunaverkefnið var til eins árs, en að því loknu ákvað stjórn SUK að fela framkvæmdastýru að þróa áfram samstarf við hlutaðeigandi aðila á svæðinu til að tryggja áframhaldandi rekstur.
Á síðasta ári dvöldu 17 konur og 15 börn í athvarfinu á Akureyri, en erfiðlega hefur gengið að finna rekstrarform sem uppfyllir þau skilyrði sem SUK setur fram til að tryggja öryggi og stuðning við konur og börn sem dvelja í athvarfinu. Því er ljóst að víðtækt samstarf þarf að koma til svo unnt sé að tryggja reksturinn til lengri tíma.
Stjórn SUK hefur fundað með fulltrúum stjórnvalda og hagsmunaaðilum á Akureyri og í nærliggjandi sveitarfélögum og vonast til þess að hægt verði að tryggja rekstur kvennaathvarfs á Akureyri til frambúðar.
Þar til lausn er fundin getur athvarfið á Akureyri ekki tekið á móti nema einni konu og börnum hennar í senn.