Björgunarsveitir aðstoða ferðafólk í sjálfheldu ofan Dalvíkur
Fjölskylda á ferðalagi um Norðurland, lagði á Selhnjúk ofan Dalvíkur seinni partinn í dag, lenti í sjálfheldu og óskaði eftir aðstoð við að komast niður um klukkan 16:30 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Þar segir að fjölskyldufaðirinn hafði þá komist á topp Selnhjúks, en móðir og barn hafi verið aðeins neðar í fjallinu og ekki treyst sér ekki lengra.
Björgunarsveitir frá Dalvík og Siglufirði voru kallaðar út til aðstoðar. Þegar fólkið hafði verið staðsett um fimm leitið, var haldið á fjallið þeim til aðstoðar. „Tungumálaörðugleikar flæktu aðgerðina aðeins, sem og slæmt fjarskiptasamband. Um sexleitið í kvöld var björgunarfólk komið að öllum fjölskyldumeðlimum og haldið af stað niður. Niðurleiðin gekk áfallalaust fyrir sig og ekki reyndist þörf á að tryggja fólkið í línum á leið niður. Allir komnir heilu og höldnu af fjalli rétt fyrir klukkan átta í kvöld og aðgerð lokið,“ segir í tilkynningunni.