27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Björgunarsveitin Garðar og PCC BakkiSilicon í samstarf
Björgunarsveitin Garðar á Húsavík og PCC BakkiSilicon hafa undirritað samstarfssamning fyrir árin 2022-2024.
Í samkomulaginu felst meðal annars að Björgunarsveitin Garðar mun ferja starfsfólk PCC til og frá vinnu þegar veður er slæmt, sem og að lóðsa flutningsskip inn í Húsavíkurhöfn þegar þess þarf. Þá mun Björgunarsveitin hafa sérstaka kynningu á starfi sínu fyrir starfsfólk PCC a.m.k einu sinni á ári
,,Það er mikil ánægja með samstarfið af okkar hálfu, og hlökkum við til að starfa enn nánar með PCC og starfsfólki þess í framtíðinni,” Birgir Mikaelsson, formaður Garðars.
,,Það er markmið okkar hjá PCC BakkiSilicon að leggja ennþá meira til samfélagsins. Það ríkir því mikil ánægja hér innandyra að geta komið að því öfluga starfi sem unnið er innan Björgunarsveitarinnar á þennan hátt,“ Marella Steinsdóttir, mannauðsstjóri PCC BakkiSilicon.