13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Bjóða örvunarskammt í næstu viku
HSN mun í næstu viku bjóða þeim sem fengu Janssen bóluefni örvunarskammt með Pfizer bóluefni. Ekki er mælt með að þeir sem eru með sögu um Covid-19 fái örvunarskammt í bili, segir á vef HSN.
Að minnsta kosti 28 dagar þurfa að hafa liðið frá Janssen bólusetningunni til að geta mætt í örvunarskammt þó mælst sé til að bilið sé átta vikur. Allir munu fá boð í þessari eða næstu viku en geta einnig valið að koma á næstu vikum.
Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningu eða eiga eftir að fá seinni skammt af Pfizer bóluefni eru einnig velkomnir á auglýstum tímum hér fyrir neðan.