Bilun í Reykjaveitu í Fnjóskadal
03. júní, 2013 - 14:03
Vegna bilunar í stofnlögn hitaveitunnar þarf að taka vatnið af frá kl. 8.30 þriðjudaginn 4. júní og mun viðgerð standa fram eftir degi.
Bilunin er skammt frá Fjósatungu þannig að lokunin á við svæðið norðan Illugastaða (Fnjóskadalur norðan Illugastaða, Grýtubakkahreppur og Grenivík).
Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem af þessu leiðir og vonum við að hratt og vel gangi að gera við bilunina.
Upplýsingar um framvindu málsins verða inn á heimasíðu Norðurorku www.no.is
Viðskiptavinir eru beðnir að kynna sér "GÓÐ RÁÐ KOMI TIL ÞJÓNUSTUROFS".
Nýjast
-
KEA kaupir eignasafn Íveru á Akureyri
- 11.12
Ívera íbúðafélag, áður Heimstaden, hefur gengið frá samningum við dótturfélag KEA um kaup hins síðarnefnda á um 120 íbúðum Íveru á Akureyri. Kaupverð eignanna er rúmir 5 milljarðar króna. Ívera hefur nýverið gefið út áform um tvöföldun á eignasafni sínu sem er í dag um 1.600 íbúðir. Sala eignanna á Akureyri er liður í endurskipulagningu eignasafnsins og styrkir undirstöður félagsins fyrir frekari vöxt. Í viðræðunum lögðu Ívera og KEA áherslu á áframhaldandi húsnæðisöryggi fyrir leigutaka íbúðanna en stefna KEA er að reka íbúðasafnið til langs tíma og stefnir félagið á frekari vöxt á þessu sviði. Því munu viðskiptin ekki að hafa neikvæð áhrif á núverandi leigutaka. Viðskiptin marka brotthvarf Íveru af íbúðamarkaði á Akureyri og félagið stefnir ekki á frekari umsvif þar í náinni framtíð. Stefnt er að afhendingu eignanna fyrir jól. --- -
Góð reynsla af símafríi
- 11.12
Góð reynsla hefur verið af símafríi í grunnskólum Akureyrarbæjar síðan símasáttmáli var innleiddur í upphafi skólaársins. Reglurnar kveða á um að símar eru ekki leyfðir á skólatíma, hvorki í skólanum né á skólalóðinni, en unglingastigið fær að nota síma í frímínútum á föstudögum. -
3,5 milljarða styrkur til að tryggja vatnsgæði á Íslandi
- 11.12
Umhverfisstofnun, ásamt 22 samstarfsaðilum, hefur hlotið um 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu til að vinna að fjölbreyttum verkefnum til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.Verkefnið ber yfirskriftina LIFE ICEWATER og er ætlað að: -
Slæm loftgæði í dag – unnið er að rykbindingu
- 11.12
Loftgæði á Akureyri eru slæm í dag vegna mikils svifryks, sem stafar af hægum vindi, stilltu veðri og mengun. Þau sem eru viðkvæm fyrir, svo sem aldrað fólk, börn og einstaklingar með viðkvæm öndunarfæri, eru hvött til að takmarka útivist og áreynslu, sérstaklega nálægt fjölförnum umferðargötum. -
Holllvinir SAk enn á ferð - Nýr hitakassi á barnadeild
- 11.12
Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur fengið nýjan og fullkominn hitakassa af gerðinni Babyleo frá Dräger. Kassinn leysir af hólmi eldri gerð sem komin var til ára sinna og ekki lengur hægt að fá varahluti í. Nýi hitakassinn er bæði notendavænn og auðveldur í umgengni og mun nýtast afar vel á hágæslu nýbura á barnadeildinni. Á deildina leggjast inn veikir nýburar og fyrirburar sem fæddir eru eftir 34 vikna meðgöngu og eru hitakassar lykilbúnaður í meðferð þeirra. -
Fyrstu önn Leiklistaskóla Draumaleikhúsins lokið
- 10.12
Fyrstu önn Leiklistarskóla Draumaleikhússins lauk um helgina með nemendasýningu í Deiglunni. Sýningin; Elísabet Scrooge - Alein á jólum var sýnd og var hún lokapunktur af 12 vikna námskeiði á 1.stigi. -
Starfsfólk í Hlíðarfjalli auglýsir eftir vetrinum!
- 10.12
,,Það er svo misjafnt sem mennirnir hafast að“ segir í Hótel Jörð Tómasar Guðmundssonar og það má etv heimfæra upp á þá stöðu sem uppi er í veðrinu? Sumir vilja snjó strax og mikið af honum, meðan aðrir fagna hverjum degi í snjóleysi. -
Framkvæmdir við borholu á Svalbarðseyri
- 10.12
Í haust stóðu yfir framkvæmdir á borholu SE-01 á Svalbarðseyri. Hola SE-01 er 928 metra djúp og upp úr henni rann sjálfrennandi vatn, um 4,6 l/s og 55°C heitt. Holan var notuð fyrir hitaveitu Svalbarðseyrar allt til ársins 2003, en þá var lögð stofnlögn frá Brunná að Svalbarðseyri og hefur því vatn frá Laugalandi þjónað Svalbarðsstrandarhreppi síðan. Eftir það hefur hola SE-01 eingöngu verið notuð fyrir bæinn Svalbarð. -
Bergur Jónsson nýr yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra
- 09.12
Þann 1. nóvember síðastliðinn tók Bergur Jónsson við sem nýr yfirlögregluþjónn hjá embættinu. Bergur er fæddur og uppalinn Akureyringur og hefur starfað sem lögreglumaður frá árinu 1995, bæði sem rannsóknarlögreglumaður, lögreglufulltrúi og varðstjóri í sérsveit.