Aukið ofbeldi, fjölga þarf lögreglumönnum á vakt

Ofbeldi hefur aukist. Of fáir lögreglumenn eru á vakt hverju sinni. Stjórn Aflsins skorar á ríkisval…
Ofbeldi hefur aukist. Of fáir lögreglumenn eru á vakt hverju sinni. Stjórn Aflsins skorar á ríkisvaldið að bæta mönnun hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.

 

Stjórn Aflsins – samtök fyrir þolendur ofbeldis, lýsir yfir áhyggjum af auknu ofbeldi og alvarlegri brotum á Norðurlandi eystra. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur lýst því að á starfssvæði þeirra hafi ofbeldi aukist og að sú aukning eigi við ýmsa málaflokka s.s. kynferðisbrot, líkamsárásir og heimilisofbeldi. Teymisstjóri Bjarmahlíðar hefur lýst því yfir að þörfin fyrir þolendamiðstöð fyrir þolendur ofbeldis hafi aukist á milli ára, auk þess sem aukin eftirspurn hefur verið eftir þjónustu Aflsins.

Þess utan birtast okkur sláandi tölur í íslensku æskulýðsrannsókninni, en þar kom t.d. fram að 20% stúlkna í 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar svara því að þær hafi upplifað að annar unglingur hafi haft munnmök eða samfarir við þær gegn þeirra vilja. Stjórn Aflsins skorar á ríkisvaldið að bæta mönnun í útkalli lögreglunnar á Akureyri, en lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur bent á að bregðast þurfi við og fjölga þurfi lögreglumönnum á stöðinni um minnst tólf. Stjórn Aflsins hvetur alla þá sem koma að málefnum þeirra sem verða fyrir ofbeldi að taka stöðunni alvarlega og bregðast við með öflugum hætti. Við getum þetta saman segir í ályktun frá stjórn Aflsins.

Nýjast